Óhapp við Hjálparfoss

Umferðaróhapp varð við Hjálparfoss í dag er jeppi og fólksbifreið skullu saman á blindhæð. Engin slys urðu á fólki en að minnsta kosti annar bílinn er talinn ónýtur og varð að hífa hann á pall og aka burt.

Þá tók lögreglan á Selfossi einn ökumann fyrir fíkniefnaakstur og tvo fyrir hraðakstur. Lögreglan í Keflavík tók sömuleiðis einn fyrir fíkniefnaakstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert