Hiti á Þingvöllum mældist 27,7 gráður klukkan 13 í dag, en þar er hitametið 29 gráður.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er ekki útilokað að hitamet verði slegið þar, segir á sunnlenska fréttamiðlinum sudurlandid.is.
Hitinn í gær mældist 27,1 gráða á Þingvöllum og var hæstur seinni partinn, milli fjögur og fimm.