Kvartað vegna mynda af lundaveiði á Íslandi

Gordon Ramsay
Gordon Ramsay

Mynd­ir af lunda­veiði og -áti í þætti sjón­varp­s­kokks­ins Gor­dons Ramsays, á bresku sjón­varps­stöðinni Chann­el 4 í gær, leiddu til þess að sjö áhorf­end­ur hringdu í stöðina og kvörtuðu.

Þetta kem­ur fram í frétt á vefn­um Broa­dcast.

Um­rætt dráp og át á lund­an­um átti sér stað á Íslandi, og var það ís­lensk­ur leiðsögumaður Ramsays sem snéri lund­ann úr hálsliðnum. Ekki sást til kokks­ins sjálfs sálga fugl­um, en aft­ur á móti gat að líta er hann og Íslend­ing­ur­inn gerðu að ný­veidd­um lund­um og borðuðu úr þeim hjört­un.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert