Herjólfsdalur netvæddur

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, vígði 3G-sambandið með formlegum hætti í …
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, vígði 3G-sambandið með formlegum hætti í dag.

Þjóðhátíð í Eyjum verður netvædd í fyrsta sinn í ár, en nýlega opnaði Síminn fyrir 3G sendi í Vestmannaeyjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, kynnti þetta á blaðamannafund í tjaldi sínu að Lundaholu 6 í  Herjólfsdal þar sem hann vígði 3G-sambandið með formlegum hætti.

Þetta felur í sér að viðskiptavinir Símans geta nýtt sér ýmsa þjónustu  á borð við myndsamtöl, sjónvarp í símann, netið í símann ásamt því að komast í háhraðanetsamband í fartölvu með netlykli Símans hvar sem er innan þjónustusvæðis 3G Netsins.

Fram kemur í tilkynningu að sambandið í Dalnum sjálfum sé tímabundið, en Síminn kom fyrir sérstökum sendi þar í tilefni af Þjóðhátíð.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert