Um tíu grömm af meintu maríjúana voru tekin af farþega sem var á leið með Herjólfi á Þjóðhátíð í Eyjum í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er mikið fíkniefnaeftirlit við Herjólfsbryggju og fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík aðstoðaði við leit í gær, m.a með fíkniefnahundum.
Þá var maður í Hveragerði stöðvaður og um eitt gramm af meintu maríjúana tekið af honum.