Mikill fjöldi í Eyjum

Hvítu tjöldin eru komin upp í Herjólfsdal.
Hvítu tjöldin eru komin upp í Herjólfsdal. Sigurgeir Jónassson

Mikill mannfjöldi streymir til Vestmannaeyja á þjóðhátíð, og að sögn lögreglu eru þegar komin þangað allt að tveim þúsundum fleiri en voru á sama tíma á hátíðinni í fyrra.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri er þar mikil umferð innanbæjar, þótt umferð til bæjarins sé ekki tiltakanlega mikil. Segir lögreglan að verslunarmannahelgin í ár byrji því heldur rólegar en hún hafi gert í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert