Ekki er nú hægt að fá tjaldstæði í Húsafelli þar sem þar er allt orðið yfirfullt.
Ekki liggur fyrir hversu margir eru á svæðinu en staðarhaldari tók þá ákvörðun í morgun að loka tjaldstæðinu fyrir þeim sem ekki hafa þegar tryggt sér pláss þar.
Nítján stiga hiti er nú í Húsafelli og hálfskýjað.