Skeljungur og Orkan hafa lækkað eldsneytisverð um 2 krónur lítrann. Er lækkunin rakin til lækkunar hráolíuverðs og styrkingar krónunnar.
Hjá Skeljungur kostar lítrinn af bensíni 167,70 krónur og lítrinn af dísisolíu 185,60 krónur. Hjá Orkunni kostar bensínlítrinn hjá félaginu nú 166,10 krónur og lítri af dísilolíu 184 krónur.