Lögreglumenn á Akranesi lögðu áherslu um verslunarmannahelgina áherslu á fíkniefnaeftirlit í bænum og eftirlit með akstri undir áhrifum ólöglegra fíkniefna. Komu fimm fíkniefnamál til rannsóknar og í þeim var lagt hald á 20 grömm af maríjúana, 15 grömm af amfetamíni og lítilræði af hassi og kókaíni.
Þá voru fimm ökumenn staðnir að akstri undir áhrifum ólöglegra fíkniefna og einn ökumaður undir áhrifum áfengis.