Lögreglan á Vestfjörðum fékk tilkynningu um ölvaðan ökumann á húsbíl á tjaldsvæði á Þingeyri aðfaranótt laugardagsins. Hafði maðurinn ekið yfir hluta tjalds þar sem erlendur ferðamaður var í. Tjaldbúinn náði að velta sér undan þegar bílljósin nálguðust tjaldið.
Annar ökumaður, sem grunaður er um ölvun, var stöðvaður á Barðaströnd á laugardaginn.