Íslenskar friðarhreyfingar stóðu í kvöld að kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn í kvöld í minningu fórnarlamba kjarnorkueldanna í japönsku borgunum Hiroshima og Nagasaki dagana 6. og 9. ágúst 1945.
Var þetta 24. kertafleytingin á Tjörninni af þessu tilefni. Fyrsta kertafleytingin var í ágúst 1985 þegar 40 ár voru liðin frá kjarnorkuárásunum.
Kertafleyting verður við Minjasafnstjörnina á Akureyri annað kvöld klukkan
22:30.