Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 13. ára gamalli stúlku, Lönu Elísabetu Nikulásdóttur, sem síðast sást síðla dags á laugardag þegar hún fór frá heimili sínu. Lana er 155 sm að hæð með axlasítt dökkt hár og græn augu.
Ekki er vitað um klæðnað stúlkunnar en talið er að hún sé á Höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir Lönu eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.