Lækjargötu í Reykjavík verður lokað á morgun 9. ágúst vegna hátíðarhalda Hinsegin daga. Lokað verður frá Skólabrú að Geirsgötu, frá klukkan sex í fyrramálið og fram eftir degi.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að reynt verði að halda öðrum lokunum í lágmarki og því ættu viðskiptavinir verslana og þjónustufyrirtækja við Laugaveg og Bankastræti að komast leiðar sinnar fyrir og eftir skemmtigönguna sem er á dagskrá eftir hádegi.
Gangan byrjar frá Hlemmi klukkan 14:00 og gengið verður niður Laugaveg og Bankastræti að Arnarhól um Lækjargötu. Fyrrnefnd gönguleið er að sjálfsögðu lokuð fyrir almenna umferð á meðan skemmtigöngunni stendur.
Lögreglan vill beina þeim tilmælum til fólks að það noti bílastæði í nágrenni miðborgarinnar. Sömuleiðis er bent á bílastæðahús að ógleymdum strætó en hann er ávallt upplagt að taka. Þeir sem leggja ökutækjum sínum næst gönguleiðinni mega búast við einhverjum umferðartöfum. Gert er ráð fyrir töluverðum fjölda gesta í miðborginni á morgun.