Mbl.is er nú eini netmiðillinn, sem tekur þátt í fjölmiðlakönnun Capacent. Samkvæmt nýrri könnun, sem birt var í dag, fóru 52,9% þátttakenda í könnuninni daglega inn á vefinn og á tímabilinu maí-júlí og 74,6% skoðuðu vefinn í viðmiðunarvikunni.
Þessi hlutföll voru 54,7% og 76,6% í síðustu könnun, sem birt var fyrir þremur mánuðum.
Könnunin var gerð dagana 2. maí – 30. júlí. 4500 Íslendingar á aldrinum 12-80 ára voru í úrtakinu valdir með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Alls svöruðu 2631 og var nettó svarhlutfall 60,9%.