Utanríkisráðuneytið og Ísafjarðarbær hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að unnið verði saman að úttekt á möguleikum þess að koma á auknum samskiptum og viðskiptum milli Grænlands og Ísafjarðarbæjar, með sérstakri áherslu á Austur-Grænland.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, var á Ísafirði í dag. Hún segir mikla möguleika felast í samstarfi við Grænland og að þeir felist í margvíslegum atriðum, m.a. þjónustu við námuvinnslu sem til stendur að reisa á Austur-Grænlandi. Þá segir hún að mikilvægt sé að hafa skjótar hendur í þessu máli.
„Ég fór til Austur-Grænlands að heimsækja kollega minn þar og Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, var í fylgdarliðinu með mér þar. Þar
áttuðum við okkur á þeim möguleikum sem í þessu samstarfi liggja – og þeir eru
okkur mjög nálægir í tíma“, segir Ingibjörg.
„Náman verður rekin þannig
að þangað verður selflutt fólk fram og til baka til vinnu. Það býr ekki á
staðnum nema rétt á meðan það er á vakt að vinna. Og það verður kannski skipt um
áhöfn á 3-4 vikna fresti. Þá er eiginlega styst að fljúga hingað til Íslands,
það er miklu styttra heldur en til Nuuk eða til Danmerkur. Þannig að við getum
verið bakland: Það þarf að koma vistum þangað út, það þarf að koma tækjum og
tólum á meðan verið er að vinna, það er gert ráð fyrir að þarna verði nokkuð
stór flugvöllur – og svæðið er hægt að þjónusta héðan“
Í
viljayfirlýsingunni segir svo að Grænlendingar horfi til Íslands sem góðs
nágranna sem tekist hafi að byggja „velferðarríki á norðurslóðum“ og að aukin
samvinna muni án efa efla atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum sem og á Grænlandi.
Áætlað er að úttektin kosti eina milljón króna og leggur Ísafjarðarbær
fram 500 þúsund á móti jafn stóru framlagi utanríkisráðuneytisins. Frumúttekt
verður gerð af Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða.