Auglýsingaskilti meðfram vegum óheimil

Vegagerðin hyggst fjarlægja bíla sem lagt er meðfram vegum í auglýsingaskyni. Óheimilt er að setja upp áberandi auglýsingar meðfram vegum eða annars staðar utan þéttbýlis.

Aðeins er heimilt að setja upp látlausar auglýsingar um atvinnurekstur, þjónustu eða vörur á þeim stað þar sem slík starfsemi eða framleiðsla fer fram. Kemur þetta fram í 43. gr. náttúruverndarlaga, nr. 44/1999.

Umhverfisstofnun berst hins vegar töluvert af ábendingum um skilti sem sett eru upp meðfram vegum, fjarri þeirri starfsemi sem auglýst er og telur stofnunin að fjarlægja beri slík skilti. Kemur þetta fram á vef stofnunarinnar.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert