Umferðaróhapp varð norður við Hvamm í Skorradal um kl. 20 í kvöld þegar ökumaður jepplings missti stjórn á bifreiðinni sem fór nokkrar veltur. Erlendir ferðamenn, karl og kona, voru í bifreiðinni. Þau slösuðust ekki alvarlega.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi fór bifreiðin tvær til fjórar veltur. Fólkið var flutt á heilsugæslustöðina í Borgarnesi til aðhlynningar. Það hlaut skrámur og marbletti, og var mjög brugðið.