Fundi, sem oddvitar meirihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur áttu í Ráðhúsinu síðdegis, mun vera lokið. Fréttamenn hafa beðið í Ráðhúsinu en þau sem fundinn sátu hafa ekki viljað ræða við fjölmiðla.
Þau Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn Reykjavíkur, Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, ræddust við í Ráðhúsinu í dag meirihlutasamstarfið.
Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, mun einnig hafa verið á fundinum.