Mary prinsessa Dana í 66° Norður vesti

Mary og Friðrik í gönguferð.
Mary og Friðrik í gönguferð. mbl.is

Nýverið sást til Mary krónprinsessu Dana í svörtu Laugavegs dúnvesti frá 66°Norður.  Friðrik krónprins og Mary fóru í sumarferð til Skagen ásamt börnunum þeirra tveimur Christian og Isabellu.

Fjölskyldan fór í langan göngutúr meðfram ströndinni ásamt vinum fjölskyldunnar og þar klæddist Mary krónprinsessa vestinu.
 
Í tilkynningu frá 66°Norður kemur fram að mikið hafi verið fjallað um ferðina í dönsku pressunni og birtust myndir af Mary í vestinu í fjölda blaða.  Í danska blaðinu Her & Nu var sérstaklega fjallað um vestið sem Mary klæddist en þar var talað um að hún hefði verið afslappað og skynsamlega klædd við tilefnið enda er svalt sumarveðrið á Norður Jótlandi ekki ólíkt íslensku sumarveðri. 

Mary í svörtu vesti frá 66°Norður.
Mary í svörtu vesti frá 66°Norður. mbli.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert