Í dag verða opnuð tilboð í nýjan Herjólf. Þetta kemur fram á vef Ríkiskaupa sem fyrir hönd Siglingastofnunar óskuðu eftir tilboðum í smíði nýrrar ferju til fólks-, bíla- og vöruflutninga til og frá Vestmannaeyjum og Landeyjahafnar.
Fram kemur á sunnlenska fréttamiðlinum sudurlandid.is að ekki komi fram hvað margir hafi boðið í smíðina en stóra spurningin sé, hvenær verði nýtt skip tilbúið.