Skýrsla um hatursglæpi á Íslandi

Áfangaskýrsla um hatursglæpi á Íslandi er komin út.
Áfangaskýrsla um hatursglæpi á Íslandi er komin út. mbl.is/Július

Áfangaskýrsla um hatursglæpi á Íslandi er væntanleg í fyrsta sinn frá Ríkislögreglustjóra. Í skýrslunni eru hatursglæpir skilgreindir og þau vandamál sem aðildarríki ÖSE standa frammi fyrir varðandi skráningu brota og mat á stöðu hatursglæpa í aðildarríkjunum.

Í skýrslunni segir að ekki sé hægt að segja að mikil umræða hafi farið fram á Íslandi um hatursglæpi samanborið við aðgerðir stjórnvalda gegn hryðjuverkum og mansali en að talið sé að staðan á Íslandi sé verri en opinberar tölur gefa til kynna sökum þess að takmarkaðar upplýsingar sé að finna.

Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir:
 
„Þessi skýrsla er gerð í kjölfar fundar sem tengiliður Íslands sótti í Helsinki í Finnlandi dagana 16-17. júní síðastliðinn. Tilgangur fundarins var að efla samvinnu milli tengiliða aðildarríkja ÖSE um hatursglæpi og Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofunnar (ODIHR).

Á dagskrá fundarins var m.a. drög að ársskýrslu ODIHR um hatursglæpi fyrir árið 2007 (Hate Crimes in the OSCE Region: Incidents and Responses -Annual report for 2007).

Í áfangaskýrslunni er farið í stuttu máli yfir hvernig þetta samstarf varð til í desember 2003 og þróun þess. Fjallað er um skilgreininguna á hatursglæpum og þau vandamál sem aðildarríki ÖSE standa frammi fyrir varðandi skráningu brota og mat á stöðu hatursglæpa í aðildarríkjunum.

 Einnig er fjallað um löggjöf á þessu sviði og hvernig Ísland stendur í samanburði við nágrannaríki. Hlutverk lögreglunnar í greiningu hatursglæpa er skoðað auk þess sem farið er yfir mismunandi birtingarmyndir þessara brota. Í lokakafla skýrslunnar eru ýmsar tillögur og ábendingar um framþróun þessara mála á Íslandi. "


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert