Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands var settur föstudaginn 15. ágúst 2008, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Magnús Gunnarsson, formaður félagsins, setti fundinn, sem hófst á ávörpum.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona umhverfisráðherra, sem flutti fundinum kveðju Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra, tók fyrst til máls. Næst ávarpaði fundinn Magdalena Sigurðardóttir, formaður Skógræktarfélags Ísafjarðar, og bauð fundargesti velkomna. Seinastur tók til máls Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og fjallaði hann meðal annars um aðkomu Ísafjarðarbæjar að skógrækt í bæjarfélaginu.
Eftir hádegi héldu fundargestir til Sanda í Dýrafirði, þar sem afhjúpað var nýtt skilti í skóginum. Skógræktarfélag Dýrafjarðar hefur haft umsjón með ræktun að Söndum en Toyota á Íslandi hefur í hartnær tvo áratugi styrkt skógrækt þar. Í tilefni dagsins færði Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Toyota, Skógræktarfélagi Dýrafjarðar að gjöf nestisborð fyrir skóginn og keðjusög, sem nýtast mun við grisjun skógarins er fram líður, og tók Sigrún Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Dýrafjarðar, við gjöfinni.
Því næst tóku fundargestir þátt í hátíðargróðursetningu og settu niður um hundrað tré, af ýmsum tegundum berjatrjáa og runna. Munu því Sandar verða geysigott berjaland, er frá líður, en þar er nú þegar gott krækiberja- og bláberjaland, eins og fundargestir sannreyndu!