Fimm gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn lögreglu var frekar fátt í bænum og nóttin róleg.
Fjórir voru keyrðir fyrir brot á lögreglusamþykkt, þ.e fyrir að brjóta rúður, pissa á almannafæri, og slagsmál. Sá sem var í slagsmálum er enn í haldi lögreglu.