Erlendur ferðamaður var gómaður síðdegis á föstudag fyrir að aka á 149 km/klst hraða á Fagradal. Hann var ásamt ferðafélaga sínum á leið til Egilsstaða og þótti vegurinn góður til hraðaksturs.
Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum var ökumaðurinn sviptur ökuleyfi á staðnum. Þurfti ferðafélagi hans að taka við akstrinum og þarf sá líklega að stýra það sem eftir er sumarfrísins.