26,2% segjast styðja nýjan meirihluta

Hanna Birna Kristjánsdóttir og Óskar Bergsson, oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Hanna Birna Kristjánsdóttir og Óskar Bergsson, oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. mbl.is/Frikki

Í skoðana­könn­un, sem Frétta­blaðið birt­ir í dag, kem­ur fram að 26,2% segjst styðja nýj­an meiri­hluta Sjálf­stæðis­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur. Er þetta álíka stuðning­ur og meiri­hluti D- og F-lista naut þegar hann var myndaður í janú­ar. 73,8% segj­ast ekki styðja meiri­hlut­ann.

Í könn­un­inni var spurt um fylgi flokka. 46,8% sögðust myndu kjósa Sam­fylk­ingu ef kosið væri nú,  27,9% Sjálf­stæðis­flokk, 17,7% VG, 4,5% Fram­sókn­ar­flokk og 3,4% F-lista. Sam­kvæmt því fengi Sam­fylk­ing 8 borg­ar­full­trúa, Sjálf­stæðis­flokk­ur 4 og VG 3.

Hringt var í 600 Reyk­vík­inga í gær. 89% tóku af­stöðu til spurn­ing­ar um meiri­hlut­ann og 55,5% til spurn­ing­ar um ein­staka flokka.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert