Harður árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Grensásvegar um tvö leytið í nótt. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu komu bílarnir úr gagnstæðri átt og annar tekur beygju með fyrrgreindum afleiðingum.
Fjórir voru í öðrum bílnum og sluppu allir án meiðsla. Ökumaður hins bílsins var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild með minniháttar meiðsl á hálsi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á staðinn til þess að hreinsa upp olíu og ganga úr skugga um öryggi á svæðinu. Bílarnir eru að sögn lögreglu mikið skemmdir.