Lög um varðveislutíma lyfja ekki á réttum forsendum

Persónuvernd hefur sent heilbrigðisráðherra og formanni heilbrigðisnefndar Alþingis bréf með ábendingu um að ekki hafi verið byggt á réttum forsendum þegar lögum um varðveislutíma upplýsinga um lyfjaneyslu var breytt í vor.

Að mati Persónuverndar hefur lyfjagagnagrunnur landlæknis að geyma afar viðkvæmar persónuupplýsingar, sem aðeins skuli nýta í samræmi við lög og ekki geyma lengur en nauðsyn ber til. Með framangreindum lögum var varðveislutími persónuupplýsinga í þessum gagnagrunni hins vegar lengdur úr þremur árum í 30.

Í nefndaráliti meirihluta heilbrigðisnefndar Alþingis var breytingin m.a. rökstudd með vísun til umsagnar landlæknisembættisins þar sem sagði að gögn í svipuðum gagnagrunnum á Norðurlöndunum væru varðveitt í 30 ár.

Persónuvernd segir, að athugun hafi leitt í ljós að samkvæmt lögum um lyfjagagnagrunna í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi skuli persónugreinanlegum gögnum annað hvort eytt mun fyrr eða   þess gætt, að hafa upplýsingarnar ekki með persónuauðkennum.

Persónuvernd vakti athygli á þessu á fundi heilbrigðisnefndar áður en lyfjalögum var breytt. Það gerði hún og með bréfi til formanns heilbrigðisnefndar Alþingis og heilbrigðisráðherra í júlí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert