Mikill fjöldi fólks var í miðborginni í nótt og var ölvun mikil, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar var nóttin stórslysalaus en eitthvað var um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Átta gista fangageymslur lögreglunnar, flestir vegna ölvunar.