Þrettán erlendir ferðamenn hafa verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur austan við Hvolsvöll í dag. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli keyrði einn á 150 km/klst í dag, og tveir yfir 130 km/klst í kvöld.
Mesti hraðinn mældist 150 km/klst um fjögur leytið í dag. Á milli klukkan fimm og átta í kvöld voru 6 stöðvaðir, einn á 131 km/klst, fjórir á 120-130 km/klst og einn á 109 km/klst.
Eftir klukkan átta voru sex ökumenn stöðvaðir, einn á 134 km/klst hraða og hinir fimm á bilinu 110-130 km/klst.