Lögreglan á Akranesi handtók karlmann aðfaranótt laugardags eftir að maðurinn var staðinn að neyslu fíkniefna á almannafæri. Við leit á manninum fundust fíkniefni og í framhaldi var gerð leit á heimili hans, þar sem einnig fundust fíkniefni. Manninum var sleppt að lokinni frumrannsókn.
Unnin voru stórfelld eignaspjöll á bifreið af gerðinni Mercedes Benz í gær. Bílnum var lagt við Holtsflöt á Akranesi en að sögn eigandans var bíllinn tekinn við heimil hans þá um nóttina.
Málið er í
rannsókn og var leitað eftir aðstoð tæknideildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.