82% verðmunur á skötusel í fiskbúðum

Talsverður verðmunur kom í ljós á fiski í fiskbúðum í könnun, sem Neytendastofa gerði í júlílok. Mestur var munurinn á skötusel eða 82%, 51% verðmunur var á saltfiski, 43% á ýsuhakki og 26% á ýsuflökum.

Neytendastofa fór í32 fiskbúðir og fiskborð í matvöruverslunum á höfuðborgar- og Árborgarsvæðinu sem selja fisk eftir lausri vigt. Athuguninni var skipt í tvo flokka. Annars vegar var ástand verðmerkinga kannað og hinsvegar var framkvæmd verðkönnun á algengum fisktegundum.

Að mati Neytendastofu eru hinir ýmsu fiskréttir ekki samanburðarhæfir þar sem um mismunandi hráefni og samsetningu að ræða. Gerði stofnunin því eingöngu verðsamanburð á hreinum fiski í flökum eða bitum m.v. verð á hvert kg.

Verðkönnun leiddi í ljós að lægsta verð á ýsu, roð- og beinlausri, var 1180 kr/kg og það hæsta var 1490 kr/kg. Verðmunurinn þar var því 310 kr eða 26% á hverju kílói.

Þegar kílóa verð á skötusel var borið saman kom í ljós að verðmunurinn var 1305 kr. Lægsta verð á skötusel var 1585 kr/kg og það hæsta var 2890 kr/kg. Þar munaði því 82% á hverju kílói.

Hæsta verð á ýsuhakki var 1290 kr/kg og lægsta verð var 899 kr/kg, þar munaði því 391 kr eða 43%.

Hæsta verð á saltfiski var 1798 kr/kg á hvert kg, en lægsta verð var 1190 kr/kg og munar því 608 kr á hverju kg eða 51%.

Stofnunin segir að verðmerkingar hafi almennt verið í góðu lagi. Í einungis einni verslun hafi verð óverðmerkt og í annarri var verðmerkingum ábótavant. Tvær verslanir fá því skriflega ábendingu frá Neytendastofu um hvað megi betur fara í verðmerkingum.

Vefsíða Neytendastofu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert