Tveir flugdólgar leiddir burt í járnum

Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar mbl.is

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo karlmenn sem höfðu verið með ólæti um borð í vél Icelandair sem var að koma frá Manchester seint í gærkvöldi. Að sögn lögreglu héldu mennirnir, sem voru undir áhrifum áfengis, uppteknum hætti þegar þeir komu inn í flugstöðina.

Lögreglan flutti mennina í fangageymslur þar sem þeir eru látnir sofa úr sér áfengisvímuna og verður skýrsla tekin af þeim síðar í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka