Tvö innbrot í Keflavík í kvöld

mbl.is/Július

Karlmaður var handtekinn í kvöld í Keflavík grunaður um innbrot á tveimur heimilum.

Að sögn  lögreglunnar á Suðurnesjum var tilkynnt um innbrot í húsi skömmu eftir klukkan sjö í kvöld.  Stuttu síðar var komið að manni í öðru húsi og var hann með þýfi úr því fyrra í fórum sínum.

Maðurinn hefur verið handtekinn en hann hefur áður komið við sögu lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert