Lögregla og sjúkralið frá Selfossi og Reykjavík voru kölluð að Hellisheiðarvirkjun upp úr kl. 19 í kvöld vegna alvarlegs vinnuslyss.
Lögreglumenn eru ennþá við vinnu á vettvangi en tveir erlendir starfsmenn verktakafyrirtækis létust í slysinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins lokuðust mennirnir inni í súrefnislausu rými.
Að sögn lögreglu er ekki er hægt að greina frekar frá tildrögum slyssins að svo stöddu en rannsókn er í höndum lögreglunnar á Selfossi og vinnueftirlits.
Gerðar hafa verið ráðstafanir til að aðrir starfsmenn sem á svæðinu voru fái viðeigandi áfallahjálp.