Rétt fyrir kl. þrjú í nótt lenti Boeing 767 flugvél frá bandaríska flugfélaginu Delta á Keflavíkurflugvelli vegna manns sem lét öllum illum látum í vélinni. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum var maðurinn mjög ölvaður. Hann bæði ógnaði og ónáðaði aðra flugfarþega. Lögreglan handtók manninn.
Að sögn lögreglu varð áhöfn vélarinnar að grípa til þess ráðs að binda manninn, sem er 24 ára Rússi, niður við sætið sitt. Flugstjórinn ákvað að lenda á næsta flugvelli, sem reyndist vera Keflavíkurflugvöllur, og losa sig við farþegann. Lögreglan á Suðurnesjum tók á móti vélinni er hún lenti á Keflavíkurflugvelli og fjarlægði manninn frá borði. Hann var færður í fangageymslur og látinn sofa úr sér.
Vélin var að koma frá Atlanta í Bandaríkjunum og flaug áleiðis til Moskvu.