Guðlaugur G. Sverrisson, verður nýr formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Guðlaugur er formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur. Tekur hann við formennsku í stjórn OR af Kjartani Magnússyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem verður varaformaður stjórnarinnar.
Auk þeirra Guðlaugs og Kjartans voru Júlíus Vífill Ingvarsson, Svandís Svavarsdóttir og Sigrún Elsa Smáradóttir kjörin í aðalstjórn OR. Í varastjórn voru koson Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Jórunn Frímannsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Dagur B. Eggertsson og Dofri hermannson
Júlíus Vífill var einnig kjörinn formaður skipulagsráðs og formaður stjórnar Faxaflóahafna. Þorbjörg Helga er formaður umhverfis- og samgönguráðs og leikskólaráðs. Jórunn verður formaður velferðarráðs og formaður stjórnkerfisnefndar. Marta Guðjónsdóttir verður formaður mannréttindaráðs og Áslaug Friðriksdóttir verður formaður menningar- og ferðamálaráðs.