Meirihlutasamstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks fékk fjóra menn kjörna í borgarráð, þá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, Óskar Bergsson, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvason. Minnihlutinn hlaut þrjá, þau Dag B. Eggertsson, Svandísi Svavarsdóttur og Björk Vilhelmsdóttur. Óskar Bergsson verður formaður borgarráðs.