Líst vel á starfið

Hús Orkuveitu Reykjavíkur.
Hús Orkuveitu Reykjavíkur. mbl.is/Ómar

Guðlaugur G. Sverrisson, sem var í dag kjörinn nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir nýja starfið leggjast vel í sig. Aðspurður segist Guðlaugur vilja hitta borgarstjóra, formann borgarráðs, forstjóra OR og lykilstjórnendur áður hann tjáir sig nokkuð um framtíðarstefnu OR.

Hann á von á því að fundurinn verði haldinn fljótlega. „Þetta leggst auðvitað mjög vel í mig,“ sagði Guðlaugur í samtali við mbl.is.

Spurður út í aðdragandann segir hann: „Ég vissi ekki af þessu fyrr en núna í gær.“

Guðlaugur G. Sverrisson.
Guðlaugur G. Sverrisson.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert