Magnús Þór Gylfason, hefur verið ráðinn í stöðu aðstoðarmanns Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra.
Magnús Þór Gylfason er 34 ára viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hann gegndi starfi skrifstofustjóra og verkefnisstjóra á skrifstofu borgarstjóra á árunum 2006 til ársloka 2007 og sat í starfshópi þáverandi borgarstjóra um bættan rekstur Reykjavíkurborgar. Frá ársbyrjun 2008 hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi.
Magnús Þór var framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins á árunum 2002 til 2006 og framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna á árunum 2000 til 2002.
Magnús Þór er kvæntur Elvu Dögg Melsteð framkvæmdastjóra og eiga þau tvö börn.