Íbúðalánasjóður heimilar nú þeim sem eiga tvær húseignir og hafa ekki getað selt aðra þeirra að fresta afborgunum af lánum. Heimilt er að fresta greiðslum af lánum sjóðsins á annarri eða báðum eignum. Sama rétt eiga þeir sem eru að byggja og eru með lán hjá Íbúðalánasjóði á nýbyggingunni og/eða þeirri eign sem ekki hefur tekist að selja.
Hvíli lán frá Íbúðalánasjóði á annarri eigninni eingöngu er hægt að sækja um greiðslufrest á því láni, að því er segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.
Frestur er veitt í eitt ár í senn en skilyrði sem sett eru fyrir frestun eru að fasteign hafi verið keypt eftir 1. júlí 2007, reynt hafi verið að selja aðra eignina og fjárhæð láns/lána, að lokinni frystingu, fari ekki yfir 90% af kaupverði/söluverði.
Heimilað verður að frysta lán á báðum eignunum. Miðað er við að fjárhæð láns
að lokinni frystingu, með áföllnum vöxtum og áætluðum verðbótum, fari ekki yfir
90% veðsetningu af kaupverði eignar eða ásettu söluverði eignar. Ef kaupverð
liggur ekki fyrir á nýbyggingu er miðað við endurstofnsverð að viðbættu
lóðarmati.
Þegar lán hefur verið fryst þarf ekki að greiða fastar
afborganir. Þegar frystingu er aflétt bætast vextir og verðbætur við
höfuðstólinn og greiðslubyrði er umreiknuð.