Fjölmenni á landbúnaðarsýningu

Fjölmenni er nú á landbúnaðarsýningu á Hellu.
Fjölmenni er nú á landbúnaðarsýningu á Hellu. Jónas Erlendsson

Á fjórða þúsund manns er nú statt á Landbúnaðarsýningu og Töðugjöldum á Hellu. Hátíðirnar hófust í gær og standa þar til síðdegis á morgun.

Sýningarsvæðið var opnað kl. 10 í morgun og þá þegar var fólk farið að streyma inn á svæðið. Að sögn Jóhannesar Hr. Símonarsonar, framkvæmdastjóra Landbúnaðarsýningarinnar, er aðsókn mjög góð en á hádegi í dag var á fjórða þúsund gesta komið inn á svæðið. Kemur þetta fram í tilkynningu.

Dagskrá dagsins er fjölbreytt en hún hófst með gangtegundasýningu íslenska hestsins, rúningi og ullarlýsingu.

Eftir hádegið er þéttskipuð dagskrá þar sem meðal annars verður fjárhundasýning, kálfasýning, hrútaþukl, keppni í dráttarvélaleikni og jurtagreiningu, auk þess sem A-úrslit í meistaramóti Geysis í tölti hefjast kl. 15.

Klukkan 20 hefst svo kvöldvaka þar sem til dæmis Álftagerðisbræður og Ingó og Veðurguðirnir skemmta. Ræðumaður kvöldsins er Guðni Ágústsson alþingismaður.

Kvöldvökunni lýkur með varðeldi, brekkusöng undir stjórn Árna Johnsen og flugeldasýningu.

Á morgun verður útimessa, skeifusmíði, litasýning og ómmælingar sauðfjár, keppni í sveitafitness og bændaglíma Suðurlands.

Sýningin teygir anga sína út fyrir aðalsýningarsvæðið, því kúabændur á bæjunum Bjólu, Helluvaði og Selalæk í Rangárþingi ytra bjóða gesti velkomna til að kynna sér bústörfin á vettvangi. Einnig býður hrossaræktarbúið Fet gesti sýningarinnar velkomna. Búin eru opin kl. 16-19 í dag og á morgun.

Nánari upplýsingar á www.landbunadarsyning.is 

Á sýningunni má sjá þetta hrútshöfuð.
Á sýningunni má sjá þetta hrútshöfuð. Jónas Erlendsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert