ÍBV menn fá undarlegt bréf

Nokkrir aðilar tengdir ÍBV fengu í morgun sent heldur óvenjulegt bréf með tölvupósti. Í því segir bréfritari að hann hafi tapað 37.000 bandaríkjadölum eftir að hafa tippað á sigur ÍBV í leik ÍBV og KA en ÍBV tapaði leiknum. 

Á Eyjafréttum.net má lesa að eftir lestur bréfsins megi draga þá ályktun að bréfritari eigi við alvarleg geðræn vandamál að stríða.

Við birtum hér lítinn hluta úr bréfinu en sökum fúkyrða er ekki birt meira.

Thank you for your last KA Akureyri match.I  made a bet on IBV Vestmannaeyjar and I lost $37,000 because of your team****. You are bastards of the Betting Companies.

Sjá Eyjar.net.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert