Borgarstjóri Reykjavíkur, Hanna Birna Kristjánsdóttir, setti þrettándu Menningarnótt Reykjavíkur klukkan 13 á Óðinstorgi. Yfir fjögur hundruð viðburðir eru í boði í borginni í dag.
Að lokinni setningu frumflutti Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og borgarlistamaður, Menningarnæturljóð.
Færeyska söngkonan Sölva Ford söng nokkur lög ásamt Björgvini Gíslasyni gítarleikara.
Liðlega fjögur hundruð viðburðir eru í boði frá hádegi til miðnættis í dag - frá Miklatúni að Háskólatorgi.
Viðburðir eru af margs konar tagi: tónlist, leiklist, dans og hönnun.
Dagskrárrit Menningarnætur má finna víðsvegar í miðborginni en dagskráin er einnig á heimasíðu hátíðarinnar, menningarnott.is.