Tæplega tuttugu unglingar voru færðir í sérstakt athvarf á Menningarnótt í Reykjavík og er það svipaður fjöldi og í fyrra að sögn lögreglu. Hringt var í foreldra þeirra og þeim gert að sækja krakkana en ástand sumra var slæmt sökum ölvunar.
Hópur svæðislögreglumanna hélt úti eftirliti í gærkvöld og nótt en tilgangur þess var að vinna gegn ólöglegri útivist og áfengisdrykkju. Afskipti voru höfð af fjölmörgum unglingum en þeir sem höfðu ekki aldur til að vera úti við var vísað heim eða færðir í athvarf.
Þá var miklu magni af áfengi hellt niður en lögreglan tók áfengi af u.þ.b. 150 unglingum. Lögreglan segir, að almennt séð hafi ekki verið mikið um brot á lögum um útivistartíma en þeim mun meira um brot á áfengislögum.
Lögreglumenn segjast nokkuð sáttir með ástandið en ölvun var talsverð og jókst eftir því sem leið á nóttina.