Lítilræði af tóbaksblönduðu hassi fundust á farþega í bíl, sem lögreglan stöðvaði í Reykjanesbæ í dag. Þá fann lögreglan um 35 grömm af meintu amfetamíni í söluumbúðum utan vegar við Njarðarbraut.
Lögreglan segir, að árvökulir íbúar hafi tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í námunda við staðinn, þar sem efnin fundust og leiddi það til þess að lögreglan fann efnin.