Eldsneytisverð hækkar á ný

AP

Verð á eldsneyti hefur hækkað á ný á flestum bensínstöðvum landsins eftir lækkun um helgina í tilefni af góðu gengi íslenska handboltalandsliðsins. Algengt verð á bensínlítranum er nú 165,70 krónur og dísillítranum 181,60 krónur. Hjá Orkunni á Akranesi kostar hins vegar bensínlítrinn 154,50 krónur og dísillítrinn 170,10 krónur. Hjá Orkunni á Miklubraut kostar lítrinn af bensíni 156 krónur og dísillítrinn 171,80 krónur.

Á bensínafgreiðslum Egó, Atlantsolíu og ÓB er algengt verð á bensíni 164,10 krónur og á dísil 179,90 krónur lítrinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert