Flugvél Icelandair sem flytur silfurliðið í handknattleik heim af Ólympíuleikunum á morgun mun lenda í Reykjavík samkvæmt heimildum Víkurfrétta. Ólympíufarar munu stíga þar frá borði og farþegaþotunni síðan flogið frá Reykjavík til Keflavíkur.
Fjölmargir Suðurnesjamenn ætluðu að taka á móti silfurliðinu í Leifsstöð. Var það meðal annars ætlun vélhjólamanna að fylgja liðinu frá Keflavík til Reykjavíkur.
Þessir aðilar eru að vonum svekktir með þá tilhögun að lenda í Reykjavík.