Strætó bs hefur ákveðið að bjóða frítt í allar ferðir strætó á morgun frá kl. 15 og þar til akstri lýkur um miðnætti í tilefni fagnaðarfunda handboltalandsliðsins og íslensku þjóðarinnar. Vill Strætó með þessu leggja sitt af mörkum til að einfalda almenningi að taka þátt í hátíðarhöldunum og draga jafnframt úr umferð einkabíla fyrir og eftir skipulagða dagskrá.
Vegna dagskrárinnar í miðbænum verður akstri jafnframt breytt á sjö strætóleiðum. Breytingarnar munu gilda milli kl. 16 og 19:30 á leiðum 1, 3, 6, 11, 12 og 13, en milli kl. 10 og 19:30 á leið 14. Notendur Strætó eru hvattir til að kynna sér breytingarnar nánar á vefnum Strætó.is og á veggspjöldum víða um borgina.