Tré ágústmánaðar er afbrigði körfuvíðis sem kallast þingvíðir og vex á lóð við leikskólann Steinahlíð í Vogahverfinu í Reykjavík. Það er Skógræktarfélag Reykjavíkur, sem stendur að verkefninu Tré mánaðarins.
Húsið þar sem leikskólinn er nú var byggt árið 1932 af þeim Elly Schepler Eiríksson og Halldóri Eiríkssyni. Þau gáfu Barnavinafélaginu Sumargjöf húsið og landið umhverfis árið 1949 og hefur leikskóli verið starfræktur þar síðan. Ósk Ellyjar og Halldórs var að sérstök áhersla væri lögð á kenna börnunum að meta og rækta tengslin við náttúruna og hefur þar alla tíð verið lögð áhersla á matjurta- og trjárækt. Steinahlíð tekur þátt í Grænfánaverkefninu í samstarfi við Landvernd.
Að sögn Skógræktarfélagsins kalla börnin í Steinahlíð þingvíðinn „töfratréð” og er hann vinsælasta klifurtréð í garðinum. Svala Jóhannsdóttir leikskólakennari benti Skógræktarfélaginu á þetta tré og segir að þegar gestir komi í heimsókn frá öðrum leikskólum sé þeim alltaf boðið að klifra í „töfratrénu”. Þegar börnin hafa náð þriggja ára aldri tekst þeim yfirleitt að klifra upp á neðstu greinar trésins og síðan fara þau hærra og hærra. Tréð er 6,15 metrar á hæð, ummál í brjósthæð 0,65 m. og umfangið 7,50 m.
Þingvíðir er kenndur við Alþingishússgarðinn en Tryggvi Gunnarsson gróðursetti hann þar í lok 19. aldar. Það tré er nú horfið, en árum saman var þingvíði fjölgað út frá þessu tré og seldi Skógræktarfélag Reykjavíkur mikið af honum á sínum tíma. Ræktun hans lauk að mestu eftir mikið vorhret sem gerði 1963 og skemmdi fjölda trjáa á sunnanverðu landinu. Á nokkrum stöðum utan þéttbýlis Reykjavíkur standa þó enn stæðileg þingvíðitré sem nutu þess að seinna voraði þar en í húsagörðum borgarinnar.
Þingvíðirinn er talinn af norrænum uppruna þar sem hann vetrarbýr sig eðlilega á haustin, en blómgast líka þegar hlýindakafla gerir á veturna og lætur því á sjá. Hann er hraðvaxta og fyrirferðamikill, laufblöðin löng og mjó og fá gula haustliti. Þrátt fyrir allt er þingvíðirinn glæsileg trjátegund sem vert er að rækta áfram í
hlýnandi veðurfari og þá einna helst í stórum görðum og á útivistarsvæðum.