Íslenska landsliðið í handbolta tók í kvöld við orðum úr hönd forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Landsliðið fékk riddarakross fyrir afrek sín og Einar Þorvarðarson sömuleiðis, fyrir forystu í íslenskum handbolta. Ólafur Stefánsson, Guðmundur Þ. Guðmundsson og Guðmundur Á. Ingvarsson fengu stórriddarakross.
Þeir sem fengu riddarakross fyrir afrek í íþróttum voru: Alexander Petersson, Arnór Atlason, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Björgvin Páll Gústavsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Hreiðar Levy Guðmundsson, Ingimundur Ingimundarson, Logi Geirsson, Róbert Gunnarsson, Sigfús Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Sturla Ásgeirsson og Sverre Andreas Jakobsson.
Þá fékk Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, riddarakross fyrir forystu í íslenskum handbolta.
Stórriddarakrossa fengu þeir Guðmundur Ágúst Ingvarsson, formaður Handknattleikssambands Íslands, fyrir forystu í íslenskum handbolta, Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari, fyrir framlag til afreksíþrótta og síðast en ekki síst Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður, fyrir afrek í íþróttum.